Þann 8. júní var líf og fjör í skólanum. Þá voru grillaðar pylsur í blíðskaparveðri og starfsfólk og kennarar gerðu ýmislegt skemmtilegt þennan dag.

 

Það var líf og fjör á íþróttadaginn í Hofsstaðaskóla þann 4. júní. Veðrið lék við okkur.

 

Íslensku menntaverðlaunin 2009 voru afhent við hátíðlega athöfn í Hofsstaðaskóla í Garðabæ fimmtudaginn 28. maí.

 

Nemendur í 1. bekkjum skólans fengu góða heimsókn miðvikudaginn 20. maí en þá komu fulltrúar frá Kiwanishreyfingunni ásamt Gunnari Einarssyni bæjarstjóra í heimsókn til að afhenda þeim reiðhjólahjálma að gjöf. Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips með stuðningi frá Forvarnarhúsinu.

 

Þá er komið formlegt nafn á tómstundaheimili Hofsstaðaskóla og heitir það nú Regnboginn. Undanfarnar vikur hefur staðið yfir mikið ferli í tómstundaheimilinu þar sem börnin fengu tækifæri til þess að koma með tillögur að nöfnum fyrir tómstundaheimilið. Því næst var farið yfir allar tillögurnar og eftir stóðu 11 nöfn sem börnin fengu svo að kjósa um.

 

Kór skólans lagði hart að sér við undirbúning og æfingar á söngleiknum Ávaxtakarfan. Afraksturinn var glæsileg sýning undir dyggri stjórn Unnar Þorgeirsdóttur tónmenntakennara. Nemendur skólans fengu að njóta sýningarinnar sem og fjölskyldur kórmeðlima og boðsgestir úr nærliggjandi leik-og grunnskólum bæjarins.

 

Árlegt vímuvarnarhlaup Lionsklúbbsins Eikar fór fram miðvikudaginn 6. maí. Þá öttu kappi nemendur í 5. bekkjum skólans. Að þessu sinni voru það nemendur í 5. Ó.H.G. sem báru sigur úr býtum.

 

Það var líf og fjör í leikfimi þegar nemendur fengu frjálsan tíma.

 

Á degi umhverfisins þann 25. apríl fóru nemendur í 5. - 7. bekk út til að fegra og hreinsa umhverfi skólans. Umhverfisráðið fór einnig í eftirlitsferð um skólann og tók út ýmsa þætti sem tengjast umhverfisstefnunni okkar.

 

Föstudaginn 3. apríl var "gulur" dagur í skólanum. Þá komu nemendur og starfsfólk skólans í einhverju gulu eða með eitthvað gult. Það var því ákaflega bjart yfir öllum þennan dag áður en haldið var í páskafríið. Gleðilega páska!

 

Föstudaginn 27. mars fengum við góða gesti í heimsókn úr Sjálandsskóla. Gestirnir voru  nemendur úr 1. og 2. bekk sem sýndu leikritið “Kardimommubærinn”.  Þetta var glæsileg sýning hjá þeim og afar gaman að fá hana í skólann okkar.

 

 

Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Tónlistarskóla Garðabæjar þriðjudaginn 24. mars.

 

Miðvikudaginn 11. mars var haldin Skólahátíð Hofsstaðaskóla þar sem valdur voru þrír fulltrúar skólans og einn til vara til að lesa á Héraðshátíð Stóru upplestrarkeppninnar.

 

Nemendur í Hofsstaðaskóla nutu veðurblíðunnar í frímínútum föstudaginn 6. mars.

 

 

 

 

Nú eru allir nemendur að æfa dans í íþróttatímum. Lögð er áhersla á að nemendur læri samkvæmisdansa og dans með frjálsri aðferð. Þann 12. febrúar dansa svo allir nemendur í 6. bekk ásamt foreldrum sínum á þorrablóti 6. bekkja.

 

 

 

 

Mánudaginn 1. desember var tekin upp hægri umferð í Hofsstaðaskóla. Það var gert með eftirminnilegum hætti því allir nemendur skólans fóru í skrúðgöngu um gangana og nutu undirleiks nokkurra tónlistarnemenda Jóhanns Björns Ævarssonar og trumbusláttar Soffíu tónmenntakennara.

 

Þriðjudaginn 25. nóvember var uppskeruhátíð fjölgreindarleikanna. Þá komu nemendur og starfsfólk saman á sal og veittar voru viðurkenningar þeim hópum sem voru í þremur efstu sætunum. Einnig fengu þeir fyrirliðar sem þóttu standa sig best viðurkenningu.

 

Fjölgreindarleikarnir

Mikið líf og fjör var í Hofsstaðaskóla þegar loksins kom að þemadögum. Að þessu sinni var unnið með fjölgreindir Howards Gardner á s.k. fjölgreindarleikum. Nemendum var skipt í 10-12 manna hópa. Í hópnum voru nemendur á öllum aldri og tveir fyrirliðar sáu um að halda utan um hópinn. Hóparnir áttu að fara á milli fjölda mismunandi stöðva, bæði í skólanum og í íþróttahúsinu Mýrinni, til að leysa ýmis verkefni sem reyndu á mismunandi hæfileika. Verkefnin voru mjög fjölbreytt og ólík. Hóparnir kepptust við að safna sem flestum stigum á hverri stöð. Hægt var að safna stigum með því að standa sig vel í þrautinni en fyrirliðarnir safna líka stigum ef þeir halda vel utan um hópinn sinn og aðstoða yngri krakkana og leiðbeina þeim.
Starfsfólk skólans mætti í furðufötum í tilefni dagsins og sá um að stjórna vinnunni á stöðvunum.

Kíkið á myndirnar. Hér er hægt að fá smá sýnishorn af stemmningunni

 

Þemadagar- Fjölgreindir
Þessar myndir eru af þeim sem voru á stöðvum inn í skólanum miðvikudaginn 19. nóvember.

 

Þemadagar-Fjölgreindir
Þessar myndir eru af þeim sem voru á stöðuvum út í íþróttahúsi miðvikudaginn 19. nóvember.

 

Þemadagar-fjölgreindir
Starfsfólk skólans klæddi sig í furðuföt í tilefni dagsins. Þarna má sjá prinsessur, jólasveina, rokkara, vampírur, sjóræningja, kínverja o.m.fl.

 

Nemendur yngri deildar komu saman á sal og hlýddu á söguna um Tröllastrákinn Dynk. Skemmtunin var að þessu sinni tileinkuð Degi íslenskrar tungu sem að þessu sinni ber upp á sunnudag. Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, þann 16. nóvember frá árinu 1996 að tillögu menntamálaráðherra.

 

Bangsadagur
Ákveðið var að hafa bangsadag á bókasafni skólans miðvikudaginn 22. október. Alþjóðlegi bangsadagurinn er mánudaginn 27. október en þá verða foreldraviðtöl  í skólanum. Nemendur í 1. og 2. bekk komu með bangsa í skólann og 1. bekkur heimsótti bókasafnið og fékk fræðslu um tilurð dagsins og hlýddi á bangsasögu. Krakkarnir í 2. bekk skrifuðu flottar bangsafrásagnir.

 

 

Vígsla battavallar

Battavöllurinn við Hofsstaðaskóla var vígður við hátíðlega athöfn föstudaginn 12. september. Páll Hilmarsson formaður skólanefndar og Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir formaður íþrótta- og tómstundaráðs klipptu á borða og vígðu völlinn formlega.

 

Hausthátíð starfsmanna Garðabæjar haldin 28. ágúst í íþróttahúsinu Mýrinni. Nánari umfjöllun í fréttasafni skólans.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi