Skólinn
Í Garðabæ velja foreldrar skóla fyrir barn sitt og bera ábyrgð á að innrita barnið í þann skóla sem þeir velja. Skólarnir sem innrita börn í 1. bekk kynna starf sitt fyrir foreldrum verðandi grunnskólanemenda á fundi í febrúar ár hvert.
Hér fyrir neðan er kynning Hofsstaðaskóla frá því í mars 2010
Kynning Hofsstaðaskóla mars 2010
Um skólann
Hofsstaðaskóli var stofnaður árið 1977 sem útibú frá Flataskóla en haustið 1980 varð hann að sjálfstæðri stofnun. Upphaflega var skólinn staðsettur í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli og var þá fyrir nemendur í 1. - 4. bekk. Hann fluttist í nýtt húsnæði við Skólabraut í Garðabæ árið 1994 og var
1. áfangi hússins tekinn í notkun, 2. áfangi haustið 1996 og sá þriðji haustið 1999.
Í Hofsstaðaskóla eru 425 nemendur í 1. - 7. bekk. Við skólann starfa um 38 kennarar auk skólastjórnenda. Aðrir starfsmenn eru um 30.
Húsvörður opnar skólann kl. 7:30. Kennsla hefst kl. 8:30 og lýkur á bilinu 14:00-14:40.
Skrifstofan er opin virka daga kl. 8:00-15:30.
Skólastjóri: Margrét Harðardóttir
Aðstoðarskólastjóri: Hafdís B. Kristmundsdóttir
Fax: 565-7094
Netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
Veffang: Áhersla á skapandi starf og einstaklingsmiðað skólastarf
Markmið Hofsstaðaskóla er að öll börn hafi jafnan rétt til náms og líði vel í skólanum. Stuðlað er að því að nemendur læri sjálfstæð, vönduð og fjölbreytt vinnubrögð. Áhersla er lögð á hlýlegt umhverfi, glaðlegt viðmót, vel menntað og hæft starfsfólk. Í skólanum er lögð áhersla á samvinnu og samræmingu námskrár leik- og grunnskóla og unnið er eftir samstarfsáætluninni „Brúum bilið“. Til þess að koma til móts við þarfir nemenda er unnið í misstórum hópum innan árganga eftir eðli verkefna og aðstæðum.
Upplýsingatækni er markviss og hefst þegar í 1. bekk ásamt kennslu í list- og verkgreinum sem einkennast af metnaði og sköpun. Kennsla í ensku hefst í 1. bekk en þar er lögð áhersla á söng og leik í tengslum við daglegt skólastarf. Í eldri árgöngum er námið færnimiðað m.a. í ensku og stærðfræði.
Félagslíf í skólanum er mjög fjölbreytt og miðar að því að nemendur læri að bera virðingu hver fyrir öðrum og sköpunargleði þeirra fái notið sín.
Meðal reglulegra viðburða eru samkomur á sal, samsöngur, útivist, þorrablót hjá 6. bekk, árshátíð hjá 7. bekk, þemadagar og íþróttadagur.
Í Hofsstaðaskóla er lögð áhersla á gagnkvæma virðingu og jákvæð samskipti heimila og skóla. Gott skólastarf byggir á markvissri þátttöku foreldra í námi barna sinna og öflugu skólaráði og foreldrafélagi.
Leiðarljós
Vinnusemi-virðing-viska-verkmennt-vellíðan