Myndir
Myndir úr vetrarfríinu
Hér má sjá nokkrar myndir frá starfi okkar í Regnboganum það sem af er vetri. Við stefnum að því að setja fleiri myndir inn fljótlega
Í vetrarfríinu vorum við dugleg að gera ýmsa skemmtilega hluti svo sem að heimsækja lögregluna, skoða Árbæjarsafn, baka pizzu, hafa furðufatadag og horfa á bíó í Regnboganum. Hér eru nokkrar myndir frá vikunni okkar.
Í vetur hefur ekki verið mikið um snjó en samt tókst okkur að finna góðan dag til að leika okkur í nýföllnum snjó. Gleðin skín úr andlitum barnanna á þessum frábæra degi!
Hér eru nokkarar myndir af börnum við föndur og annan leik
Nú erum við nýbúin að hafa starfsdag í Hofsstaðaskóla og hér sjáum við nokkrar myndir frá 27. janúar.
Hér má nokkrar myndir úr starfi okkar í desember
Nú eru fyrstu myndirnar frá starfi Regbogans veturinn 2010-2011 komnar inn. Þetta eru myndir sem sýna börnin í inni og útileikjum, á starfsdegi og svo spjallandi við starfsmenn ESPN fréttastofunnar þegar þeir komu til að taka viðtal við starfsmanninn okkar hann Halldór.
Betra seint en aldrei :) Hér koma ýmsar myndir frá vetrarfríinu, bæði frá strætóferð á Listasafn Reykjavíkur og frá öskudeginum
Nýjar myndir frá starfinu í desember. Einnig eru skemmtilegar myndir frá rauða deginum okkar þar sem viðstöddum var stillt upp til myndatöku. Skemmtilegar myndir :)
Miðvikudaginn 2. desember flutti leikhópurinn Regndroparnir úr tómstundaheimilinu tvö leikrit á sviði Hofsstaðaskóla undir dyggri stjórn Kristnýar Gústafsdóttur starfsmanns Regnbogans. Þetta voru leikritin litla stúlkan með eldspýturnar og Þegar Trölli stal jólunum. Börnin notuðu síðustu þrjár vikur til að undirbúa sig vel og stóðu sig með prýði þegar á hólminn var komið. Sýnt var fyrir 150 manns, foreldrar, systkini og aðra gesti sem börnin buðu með sér.
Eins og vanalega er mikið um að vera í Regnboganum og hér koma nokkrar myndir frá starfinu í nóvember.
Hér má sjá myndir frá skipulagsdeginum 23. október og frá foreldraviðtalsdeginum 26. október. Börnin fóru meðal annars í sund í Mýrinni ásamt því að fara í mjög spennandi ratleik á lóð skólans.
Hér koma fyrstu myndirnar úr Regnboganum, veturinn 2009-2010.
Föstudaginn 5. júní fengum við að nota fimeikasal Stjörnunnar sem settur hefur verið upp í Mýrinni. Þetta var mjög gaman og er hér hægt að sjá nokkarar myndir af krökkunum á fullu í allskonar leikfimi og fjöri.
Nú er tómstundaheimilið okkar loksins búið að fá nafn. Nú heitir það tómstundaheimilið Regnboginn. Í gær var nýja nafnið afhjúpað með smá athöfn og veislu í Mýrinni og var skólastjórinn okkar hún Margrét Harðardóttir viðstödd. Hér eru nokkrar myndir frá athöfninni.
Betra seint en aldrei :) Hér koma fleiri myndir frá páskafríinu í apríl. Hér má sjá myndir af krökkunum í sundi, á leið í strætó, í Hellisgerði og við ýmislegt dundur innan húss í Mýrinni.
Í páskafríinu var farið í Hellisgerði, fallega skrúðgarðinn í Hafnarfirði og hann skoðaður hátt og lágt. Eins og sjá má á þessum myndum skemmtu börnin sér konunglega við að kanna hinar ýmsu myndir náttúrunnar, vatnið, hraunið, grasið og allt annað sem hægt var að finna innan svæðisins.
Hér má sjá nokkrara skemmtilegar myndir af fyrri hópnum sem eru á LEGO-námskeiðinu. Í næstu viku munum við svo bæta við myndum af seinni hóp námskeiðsins.
Hér er enn ein myndasyrpan frá vetrarfríinu, við fórum í sund, lékum okkur inni, horfðum á bíó og annað þess háttar. Einnig fengum við gefins blóm frá þakklátri móður og langar okkur að leyfa ykkur að njóta þeirra með okkur svo að við settum mynd að þeim hér með. Kærar þakkir :)
Í vetrarfríinu fórum við líka í vettvangsferð í Þjóðminjasafnið og skemmtum við okkur vel, bæði við leik og hinar ýmsu uppgötvanir.
Í vetrarfríinu okkar lékum við okkur í ýmsum leikjum og meðal annars fórum við í blöðruleiki í íþróttasalnum, hér eru svipmyndir frá því.
Í gær, sprengjudaginn, var haldin söngkeppni í tómstundaheimilinu og kallaðist hún Idol-Tómstund. Börnin voru dugleg að skrá sig í keppnina og komu þau sáu og sigruðu - öll sem eitt. Það var aðdáunarvert að sjá hvað þau voru dugleg að standa frammi fyrir félögum sínum og syngja lagið sem þau höfðu valið. Hér á myndunum má sjá keppendur og dómnefnd að störfum. En dómarar voru Elli, Greti og Stefí :)
Í fyrsta sæti urðu þær stöllu Agnes og Valdís með lagið "Vinir í raun", öðru sæti skiptu Arndís og Samúel með sér og í þriðja sæti komu annars vegar Heiður og Helga María og hins vegar Inga Huld. Allir fengu viðurkenningarskjal fyrir frábæra framistöðu og viljum við þakka öllum þátttakendum fyrir vel unnin störf og hvetjum þau til að taka aftur þátt að ári liðnu :-)
Í jólafríinu voru ekki mörg börn hjá okkur í tómstundaheimilinu en við gerðum okkur samt glaðan dag og fórum í sund, heimsóttum náttúruminjasafn Kópavogs og föndruðum svo nokkuð sé nefnt. Við skemmtum okkur vel saman og höfðum það gott
Það hefur verið líf og fjör hjá krökkunum í tómstundaheimilinu. Þeim stóð til boða að koma með gamlan skó að heiman og notar föndurhornið í tómstundaheimilinu til að hressa upp á hann áður en fyrsti jólasveinninn, hann Stekkjastaur, kemur til byggða þann 11. desember. Örtröð hefur verið í föndurhorninu því margir hafa tekið þessu skemmtilega tilboði. Það verða því glæsilegir skór í glimmer og glans sem blasa við jólasveinunum sem heimsækja börnin okkar úr tómstundaheimilinu.
Hér sjáum við ýmsar myndír úr starfinu í október bæði inni og úti, í leik og föndri.
Það er búið að vera mikið líf og fjör í tómstundaheimilinu í september. Kíkið á myndirnar og sjáið hvað við höfum tekið okkur fyrir hendur.