Fréttir
Foreldrar eru ánægðir með starfið í skólanum
Í desember sl. Var lögð könnun fyrir foreldra um starfið í skólanum. Foreldrar voru m.a. spurðir um ánægju með skólann, skólabrag og líðan barna í skólanum og frímínútum. 93,23% foreldra sögðust geta mælt með skólanum við aðra foreldra. Svörun var mismikil milli árganga en ... [ nánar ]Starfstími Regnbogans í vetrarleyfi
Öllum börnum í 1. - 4. bekk stendur til boða dvöl í Regnboganum frá kl. 8:00-16:30 vikuna 13.- 17. febrúar n.k. en þá er vetrarfrí í skólanum. ... [ nánar ]Vitnisburður og Námsframvinda
Fimmtudaginn 26. janúar fengu nemendur afhentan vitnisburð. Við viljum minna á að námsmat í fleiri greinum er að finna í Námsframvindunni í Mentor. Þar er birt námsmat í flestum greinum sem kenndar eru í list- og verkgreinalotu... [ nánar ]26. janúar 2012
Hofsstaðaskóli er opinn í dag
Hofsstaðaskóli fylgir reglum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SSH) um röskun á skólastarfi vegna óveðurs. Mikilvægt er að foreldrar fylgist með veðurspám og taki sjálfir ákvörðun um hvort þeir sendi börnin sín í skólann. ... [ nánar ]20. janúar 2012
Breyting á starfstíma Regnbogans á samtalsdegi
Öllum börnum í 1.-4. bekk stendur til boða dvöl í Regnboganum frá kl. 8:00-17:00 miðvikudaginn 1. febrúar n.k. en þá er foreldrasamtalsdagur í skólanum. Börnin þurfa að koma með nesti fyrir daginn: morgun-, hádegis- og síðdegishressingu. ... [ nánar ]Endurskinsmerki eru bráðsnjöll fyrirbæri
Í lífsleikni í 5. bekk er verið að fræða nemendur um umferðina. Við kennsluna er m.a. notuð bókin "Á ferð og flugi í umferðinni" Þar er m.a. fjallað um endurskinsmerki og nauðsyn þeirra þegar skyggja tekur. ... [ nánar ]Námsmat og samtalsdagur
Þessa dagana stendur yfir námsmat í Hofsstaðaskóla. Flest próf eru tekin á skólatíma en sérstakir prófadagar eru hjá 5. - 7. bekk mánudaginn 16. og þriðjudaginn 17. janúar. Nemendur fá afhendan vitnisburð fimmtudaginn 26. janúar og nemenda- og foreldrasamtöl verða miðvikudaginn 1. febrúar. ... [ nánar ]Framúrskarandi íþróttakonur
Í Hofsstaðaskóla starfa tvær af flottustu íþróttakonum landsins þær Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir íþróttakona Garðabæjar 2011 og Hrafnhildur Ósk Skúladóttir íþróttamaður Reykjavíkur 2011. ... [ nánar ]Gleðilegt nýtt ár
Starfsfólk Hofsstaðaskóla óskar nemendum og aðstandendum þeirra gleðilegs árs og þakkar fyrir gott samstarf á liðnu ári. Skólastarfið með nemendum hófst að fullum krafti í dag fimmtudaginn 5. janúar. Ekki var annað að sjá en að nemendur mættu frískir til leiks og tilbúnir til að takast á við annasaman janúarmánuð sem m.a. felur í sér undirbúning fyrir kannanir.... [ nánar ]Ný gjaldskrá fyrir tómstundaheimili
Nýjar gjaldskrár fyrir leikskóla og tómstundaheimili tóku gildi nú um áramótin. Almennt hækka gjaldskrár Garðabæjar um 5% á milli áranna 2011 og 2012 sem er áætluð verðlagsbreyting á milli ára. Nálgast má gjaldskrár á vef bæjarins á síðunni: /Stjornsysla/gjaldskrar en einnig má nálgast gjaldskrá fyrir tómstundaheimilin hér á vefnum.... [ nánar ]Gleðilega hátíð
Starfsfólk Hofsstaðaskóla óskar nemendum, fjölskyldum þeirra og öllum velunnurum skólans gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári og þakkar fyrir góðar stundir á liðnum árum. Kennsla hefst aftur að jólaleyfi loknu fimmtudaginn 5. janúar skv. stundaskrá. ... [ nánar ]Jólamatur og rauður dagur
Föstudaginn 16. desember er rauður dagur. Þá eru allir hvattir til að mæta í rauðu eða með eitthvað rautt. Í mötuneytinu verður boðið upp á gómsætan jólamat fyrir alla, bæði nemendur og starfsfólk en saman munum við eiga notalega stund í salnum, njóta góðs matar í jólalegu umhverfi. ... [ nánar ]Prjónastund á aðventu
Ester kennari í textílmennt bauð aðstandendum nemenda úr 3. bekk í kennslustund í textílmennt nú á aðventunni. Mæting var mjög góð. Hópurinn átti notalega stund saman þar sem mömmur og ömmur aðstoðuðu krakkana við prjónaskap. Hópurinn fékk lánaða aðstöðuna hjá Regnboganum í kjallara skólans. Boðið var upp á kakó og smákökur. ... [ nánar ]Fyrstu verðlaun í landskeppni eTwinning
Hofsstaðaskóli hlaut fyrstu verðlaun í landskeppni eTwinning frá Landskrifstofu menntaáætlunar ESB í flokki grunn- og leikskóla fyrir verkefnið „Gefðu mér knús" (Give me a hug). Verkefnið var unnið af nemendum í 5. R.S skólaárið 2010-2011. Verðlaunin voru vegleg eða 150.000 kr. gjafabréf í Tölvulistanum sem án efa á eftir að koma í góðar þarfir. ... [ nánar ]Vinaheimsókn og vetrarganga hjá 3. ÁK
Krakkarnir í 3. ÁK hafa tekið sér ýmislegt skemmtilegt fyrir hendur nú á aðventunni. Á dögunum hitti bekkurinn vinabekk sinn í skólanum, 1. RJ, og áttu krakkarnir góða stund saman. 1. bekkur var að læra bókstafinn V og af því tilefni var tilvalið að nemendurnir í 3. ÁK hjálpuðu þeim að búa til vinabönd. Þegar því var lokið fengu allir sér piparkökur og djús saman. ... [ nánar ]Rithöfundur í heimsókn
Hendrikka Waage heimsótti bókasafn Hofsstaðaskóla þann 24. nóvember. Hún hitti nemendur í 2. og 3. bekk og las fyrir þá úr bók sinni Rikka og töfrahringurinn í Japan. Bókin fjallar um Rikku sem á töfrahring og með hans hjálp ferðast hún um Japan og lærir um menningu landsins, fallega staði og sögu þeirra.... [ nánar ]Jólafjöltefli
Fimmtudaginn 8. desember n.k. verður haldið jólafjöltefli hjá Skákklúbbi Hofsstaðaskóla. Fjölteflið er haldið í tilefni þess að fyrsta ár Skákklúbbsins er senn á enda. Dagskráin hefst kl. 18. Helgi Ólafsson stórmeistari í skák og skólastjóri Skákskóla Íslands mun heiðra klúbbinn með nærveru sinni.... [ nánar ]Góð gjöf frá foreldrafélaginu
Foreldrafélag Hofsstaðaskóla færði smíðastofu skólans að gjöf tvo brennipenna. Nemendur skólans nota brennipennana til þess að brenna í við, t.d. myndir, munstur eða stafi. Stuðningur og samstarf við foreldrafélagið er ómetanlegt. Þessi gjöf á vonandi eftir að gleðja bæði foreldra og nemendur... [ nánar ]Viðburðarík ferð í miðborgina
Nemendur í 2. bekk hafa verið að vinna verkefni um land og þjóð. Í framhaldi af því var ákveðið að heimsækja Alþingishúsið. Þann 1. desember síðastliðinn hélt hópurinn af stað með strætisvagni. Töluverðan tíma tók að komast niður í miðborgina vegna umferðar og þæfingsfærðar en allt gekk þó vel. ... [ nánar ]5 á dag
Nú þegar jólahátíðin gengur í garð er ekki úr vegi á minna á þá góðu og gildu reglu: 5 á dag. Nemendur í 3. bekk bjuggu til grænmetisbát í heimilisfræðinni hjá henni Áslaugu og borðuðu í lok tímans. Rætt var um mikilvægi þess að muna að borða 5 skammta af ávöxtum og grænmeti á dag. Það er gott mótvægi við kökurnar og sætindin sem eru í boði í desember. ... [ nánar ]Laufabrauðsgerð í Hofsstaðaskóla
Laugardaginn 3. desember kl. 11-14 stendur foreldrafélagið fyrir hinum árlega laufabrauðsbakstri í skólanum. Sannkölluð jólastemning verður í salnum og jólalögin munu óma. Myndir með hugmyndum af mismunandi laufabrauðsskurði verða sýndar á skjávarpa í salnum. ... [ nánar ]Uppskeruhátíð Fjölgreindaleika
Uppskeruhátíð Fjölgreindaleika Hofsstaðaskóla 2011 var haldin föstudaginn 11. nóvember. Fyrirliðar gengu í stofur og söfnuðu saman liðum og fóru á sal þar sem allir nutu myndasýningar frá leikunum. Þrír stigahæstu hóparnir fengu viðurkenningu fyrir frammistöðuna á leikunum. Einnig fengu fjórir strákar og þrjár stelpur viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarfyrirliðar,... [ nánar ]Heimsókn á Hönnunarsafnið
Nemendur í 4. bekk í textíl og smíðahópur fengu sér göngutúr fimmtudagsmorgunin 24. nóvember í heimsókn á Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi. Tilgangur heimsóknarinnar var að skoða þrjár sýningar sem þar eru. Árdís Olgeirsdóttir tók á móti hópnum, sýndi honum og kynnti listaverkin sem þar eru.... [ nánar ]Skáld í skóla
Nemendur í 6. og 7. bekk fengu að kynnast rithöfundinum Þórbergi Þórðarsyni á sal undir yfirheitinu Skáld í skóla þriðjudaginn 22. nóvember s.l. Þar brugðu höfundarnir Pétur Gunnarsson og Jón Hjartarson á leik og lýstu stílbrögðum og sérkennum Þórbergs. ... [ nánar ]Heimsókn nemenda til bæjarstjóra
Fulltrúar nemenda úr umhverfisnefnd og Nemendafélagi Hofsstaðaskóla heimsóttu bæjarstjóra Garðabæjar, Gunnar Einarsson, miðvikudaginn 16. nóvember s.l. Nemendur færðu honum tvö bréf með áskorun frá nemendum um lagfæringu á körfuboltavelli og ósk um að fá sér rofa á salerni nemenda.... [ nánar ]Orð af orði
Orð af orði er þróunarverkefni sem Hofsstaðaskóli vinnur að í vetur. Verkefninu er stýrt af Guðmundi Engilbertssyni sérfræðingi á skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri. Orðakennslan er felld inn í hefðbundna kennslu og gerð að föstum lið í fjölmörgum námsgreinum, m.a. heimilisfræði, íslensku, samfélagsfræði og stærðfræði. ... [ nánar ]Dagatal foreldrafélagsins og jólakort
Foreldrafélagið hefur gefið út dagatal með leiðarljósi Hofsstaðaskóla á forsíðu. Til að auðvelda skipulag heimilisins er búið að bæta viðburðadagatali skólans fyrir veturinn inn á dagatalið. ... [ nánar ]Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti
Eineltisteymi og stjórnendur Hofsstaðaskóla lögðu til við kennara að 8. nóvember 2011 væri tileinkaður umræðu og verkefnum gegn einelti sbr. Þjóðarsáttmála um baráttu gegn einelti http://gegneinelti.is/ Ýmis konar vinna fór fram í hverjum árgangi fyrir sig. Kennarar vöktu nemendur til umhugsunar um málefnið og ræddu um einelti, einkenni þess, afleiðingar og leiðir til lausna. ... [ nánar ]Fjölgreindarleikar í fjórða sinn
Fjölgreindarleikar Hofsstaðaskóla fóru fram 1. og 2. nóvember sl. Þá var hefðbundið skólastarf leyst upp og nemendur skólans unnu saman að fjölbreyttum verkefnum. Óhætt er að segja að vel hafi til tekist líkt og undanfarin ár því ánægjan skein úr hverju andliti. ... [ nánar ]Fjölgreindarleikar Hofsstaðaskóla 2011
Fjölgreindaleikar Hofsstaðaskóla verða haldnir 1. og 2. nóvember. Þá er hefðbundið skólastarf leyst upp og nemendur skólans vinna saman að fjölbreyttum verkefnum. Á leikunum er fjölgreindakenning Howard Gardners höfð að leiðarljósi. Markmið leikanna er m.a. að allir fái að njóta sín með einhverjum hætti og efla kynni við aðra í skólanum í leiðinni.... [ nánar ]Landnámið
Nemendur í 5. Bekk Hofsstaðaskóla hafa verið að vinna með námsefnið um Leif Eiríksson. Þeir hafa verið að lesa sér til um landnámið og farið í vettvangsferðir bæði á Þjóðminjasafnið og Landnámssýninguna hjá Minjasafni Reykjavíkur. Krakkarnir hafa einnig föndrað og bjuggu þau m.a. til skip landnámsmanna. ... [ nánar ]Hæðarból í heimsókn
Elstu nemendur Hæðarbóls heimsóttu Hofsstaðaskóla í vikunni. Byrjað var á samsöng með 1. og 2. bekk en síðan var farið með nemendur í skoðunarferð um stofur 1. bekkinga. Í nóvember koma nemendur aftur og þá til að skoða þá allan skólann og heimsækja bókasafnið.... [ nánar ]Neonljósabingó
Þriðjudaginn 1. nóvember kl. 18-20 stendur foreldrafélag Hofsstaðaskóla fyrir bingói í sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Felix Bergsson, fjölmiðlamaður með meiru, verður bingóstjóri. Pizzur, drykkir, neondót og ýmislegt fleira verður til sölu á staðnum. Tökum daginn frá og eigum skemmtilega stund saman. ... [ nánar ]Nemendafélag Hofsstaðaskóla
Fyrsti fundur í stjórn Nemendafélags Hofsstaðaskóla var haldinn fimmtudaginn 13. október s.l.. Í vetur eru fulltrúar úr öllum bekkjum skólans í stjórninni en valinn er einn drengur og ein stúlka sem aðalmenn og aðrir tveir sem varamenn. Á fundinum var rætt um hugmyndir nemenda varðandi stöðvar á Fjölgreindaleikum skólans 1. og 2. nóvember næstkomandi.... [ nánar ]Norræna skólahlaupið
Norræna skólahlaupið fór fram þriðjudaginn 30 ágúst. Markmiðið með norræna skólahlaupinu er að leitast við að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu og að kynna og skýra nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. ... [ nánar ]Umhverfisnefnd
Fyrsti fundur umhverfisnefndar Hofsstaðaskóla var haldinn 6. október s.l. þar sem tekin var ákvörðun um áframhaldandi öflugt umhverfisstarf í skólanum. Einnig voru samþykktar áherslur vetrarins (sjá fundargerð). Hofsstaðaskóli er skóli á grænni grein og hefur umhverfisnefnd skólans yfirumsjón með umhverfissstarfinu.... [ nánar ]Regnbogatré
Hofsstaðaskóli tekur þátt í evrópsku samstarfsverkefni (Comenius) næstu tvö árin sem nefnist „Rainbow Tree“ eða Regnbogatré ásamt skólum í Belgíu, Tyrklandi, Kýpur, Bretlandi , Rúmeníu, og Spáni. Verkefnið fjallar um tré og gildi þeirra frá ýmsum sjónarhornum. Töluverð áhersla verður á umhverfisfræðslu og náttúruvernd, mikið verður um skapandi viðfangsefni og leitast verður við að virkja alla nemendur skólans í verkefninu. ... [ nánar ]Evrópski tungumáladagurinn
Í tilefni af Evrópska tungumáladeginum þann 26.september sl. unnu nemendur á yngra stigi ýmis skemmtileg verkefni. Markmið tungumáladagsins er meðal annars að vekja almenning til vitundar um mikilvægi tungumálakunnáttu og símenntunar í tungumálum. Í Hofsstaðaskóla fá nemendur enskukennslu strax í fyrsta bekk sem eykst með árunum ... [ nánar ]Leiðsagnarmat í tengslum við nemenda og foreldrasamtöl
Nemenda og foreldrasamtöl verða í skólanum þriðjudaginn 11. október. Opnað verður fyrir leiðsagnarmatið í Mentor fimmtudaginn 29. september og eru nemendur, með aðstoð foreldra sinna, hvattir til að ljúka því við fyrsta tækifæri. Gert er ráð fyrir að allir hafi lokið matinu miðvikudaginn 5. október. Leiðsagnarmatið byggir á þátttöku nemenda og er mikilvægt að þeir taki virkan þátt í matinu og njóti aðstoðar foreldra eða forráðamanna... [ nánar ]Vinnumorgun í Húsdýragarðinum
Nemendur í 6. BÓ fóru á svokallaðan vinnumorgun í Húsdýragarðinum. Þeir mættu eldsnemma í Hofsstaðaskóla þar sem sammeinast var í bíla. Þennan morgun tóku nemendur fullan þátt í umhirðu dýranna og gekk það í alla staði mjög vel. ... [ nánar ]Útikennslustund í heimilisfræði
Nemendur í 4. bekk skoðuðu umhverfi lækjarins og athuguðu fjölbreytileika náttúrunnar í útikennslustund í Heimilisfræði. Þeir fengu m.a. það verkefni að leita að villtum plöntum sem hægt er að nota til manneldis. Rætt var um plönturnar sem fundust og hvernig hægt væri að nota þær í matargerð.... [ nánar ]Hofsstaðaskóli fékk gull þriðja árið í röð
Hofsstaðaskóli fékk gullverðlaun fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda í ár, þegar verðlaun voru veitt í lokahófi keppninnar sunnudaginn 11. september sl. Þetta er þriðja árið í röð sem skólinn fær gullverðlaunin og hlaut hann því farandbikarinn til eignar. ... [ nánar ]Íþróttatímar
Íþróttakennararnir okkar Hreinn og Ragga Dís vilja minna á að nú flytjast íþróttatímarnir inn í íþróttahús hjá nemendum í 2. og 3. bekk. Næstu þrjár vikurnar verða nemendur í 4. - 7. úti í fyrri kennslustund vikunnar en inni þá seinni. Eftir það færast íþróttirnar alfarið inn.... [ nánar ]Göngum í skólann
Miðvikudaginn 7. september hefst alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann. Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Í hverjum bekk verður skráð daglega hvort nemendur koma gangandi/hjólandi í skólann.... [ nánar ]Haustfundir
Vikuna 5. - 9. september standa yfir haustfundir með foreldrum/ forráðamönnum nemenda. Fundirnir hefjast kl. 8.30 og standa til kl. 9:50 nema í 1. bekk, sá fundur er síðdegis á fimmtudag. Fundirnir voru boðaðir með tölvupósti. Þess er vænst að foreldrar komi á fundina. ... [ nánar ]Vel hirt skólalóð
Tækni- og umhverfissvið, með garðyrkjustjóra í broddi fylkingar, tók til hendinni á skólalóðinni okkar áður en skólastarf hófst. Leiktækin voru máluð, skólalóðin slegin, þrifin og sópuð. Auk þess voru málaðir nokkrir leikir á malbikið s.s parís, tíu tuttugu, pókó, hundraðstafla og klukka.... [ nánar ]Norræna skólahlaupið 2011
Hressir og glaðir nemendur í Hofsstaðaskóla tóku þátt í Norræna skólahlaupinu þriðjudaginn 30. ágúst. Allir fóru einn hring sem var 2,5 km og bættu margir við fleiri hringjum og hlupu allt að 12,5 km. Veðrið var eins og best verður á kosið og var mikil stemning innan hópsins. ... [ nánar ]Vetrarstarf kórsins
Nú er kórinn að hefja vetrarstarfið. Kórinn er fyrir nemendur í 4. - 7. bekk. Kórgjald fyrir veturinn er 5000 kr. og fá foreldrar upplýsingar um greiðslufyrirkomulag við skráningu. Áhugasamir en óákveðnir nemendur eru velkomnir á eina æfingu til að kynna sér kórinn áður en ákvörðun um skráningu er tekin. ... [ nánar ]Starf skákklúbbsins fer í gang
Starf skákklúbbsins fyrir þennan vetur er nú að fara í gang og byrja reglubundnar skákæfingar næsta miðvikudag þann 31. ágúst kl. 15:00 til 16:00. Æfingarnar verða vikulega á þessum tíma a.m.k. fram til jóla. Kennari er Jóhanna Björg Jóhannsdóttir ... [ nánar ]Útikennsla í textíl og smíði
Nemendur í 1. og 4. bekk fóru í vettvangsferð í dag í blíðskaparveðri og skoðuðu nánasta umhverfi skólans. Markmið ferðarinnar hjá 1. bekk var að skoða skordýr og týna steina. Í textil og smíði verður svo unnið með steinana og búin til tröll og furðuverur. Við rákumst á stóran og fallegan trjámaðk ... [ nánar ]Aðalfundur foreldrafélags 30. ágúst kl. 20:00
Foreldrafélagið hefur starf vetrarins með aðalfundi félagsins þar sem er kjörin ný stjórn fyrir skólaárið og farið yfir liðið ár. Merkið endilega dagsetninguna í dagatalið og hefjið skólaárið með einum góðum aðalfundi. ... [ nánar ]Fyrsti skóladagurinn
Mikil spenna og eftirvænting fylgir yfirleitt fyrsta skóladeginum. Nemendur í 1. bekk mættu fullir tilhlökkunar og tilbúnir að takast á við nýtt umhverfi og ný verkefni. Mikið var um að vera fyrsta daginn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Dagurinn gekk vel fyrir sig hjá flottum nýjum nemendum skólans. ... [ nánar ]Skólamálsverðir í grunnskólum
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar þriðjudaginn 16. ágúst sl. var samþykkt að taka tilboði Skólamatar ehf. í framleiðslu og framreiðslu á mat í grunnskólum Garðabæjar. Frá því að tilboði er tekið þurfa skv. lögum að líða 10 dagar þar til hægt er að ganga frá samningi við fyrirtækið. Þar af leiðandi verður ekki hægt að taka á móti áskrift skólabarna í skólamat fyrr en í lok ágústmánaðar. ... [ nánar ]Innkaupalistar haustið 2011
Nú eru innkaupalistarnir tilbúnir og komnir á vefinn hjá okkur. Við minnum á að nýta það sem til er frá síðasta skólaári. Eins er mikilvægt að merkja vel allar eigur nemenda og fatnað.... [ nánar ]Kynningarfundur með nýjum nemendum
Þriðjudaginn 16. ágúst kl. 17:30 er nýjum nemendum í 2. - 7. bekk boðið til kynningarfundar hér í skólanum. Markmið fundarins er að gefa nemendum og forráðamönnum þeirra innsýn í skólann og nánasta umhverfi sem og tækifæri til að kynnast hvert öðru þannig að fyrstu skrefin í nýjum skóla verði auðveldari og ánægulegri. Foreldrafélagið kynnir einnig starfsemi sína. Þátttaka tilkynnist á hskoli@hofsstadaskoli.is ... [ nánar ]Upphaf skólastarfs
Skóli hefst mánudaginn 22. ágúst með skólasetningu. Kennsla hefst þriðjudaginn 23. ágúst samkvæmt stundaskrá. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sínum á skólasetningu. Nemendur í 1. bekk mæta með foreldrum sínum í viðtal hjá umsjónarkennara 22. ágúst. Fundarboð verður sent með tölvupósti. ... [ nánar ]Sumarleyfi
Skrifstofa Hofsstaðaskóla er lokuð frá 21. júní og opnar aftur miðvikudaginn 3. ágúst n.k. Erindi má senda á netfang skólans: hskoli@hofsstadaskoli.is. Skólinn verður settur að nýju mánudaginn 22. ágúst og hefst kennsla þriðjudaginn 23. ágúst skv. stundaskrá.... [ nánar ]Skólaslit 7. bekkinga
Þriðjudaginn 8. júní fóru fram skólaslit 7. bekkinga við hátíðlega athöfn á sal Hofsstaðaskóla. Nemendur í 7. bekk fluttu tónlistaratriði í upphafi samkomunnar og síðan fór fram verðlaunafhending fyrir besta samanlagða árangur í íslensku í hverjum 7. bekk. Kiwanisklúbburinn Setberg í Garðabæ veitir verðlaunin ... [ nánar ]Úrslit í nýsköpunarkeppni og lampasamkeppni
Á skólaslitum í Hofsstaðaskóla eru jafnan veitt verðlaun í Nýsköpunarkeppni skólans í 5. bekk og Lampasamkeppni í 6. bekk. Báðar þessar keppnir eru undir stjórn Sædísar Arndal smíðakennara en Marel gefur glæsileg verðlaun, myndavélar. Auk þess fá nemendur lampa sem verðlaunagrip. ... [ nánar ]06. júní 2011
Skólaslit vorið 2011
Skólaslit Hofsstaðaskóla verða miðvikudaginn 8. júní. Nemendur mæti til skólaslita sem hér segir: kl. 9:00 5. og 6. bekkur kl. 10:00 3. og 4. bekkur kl. 10:30 1. og 2. bekkur kl. 17:00 7. bekkur ... [ nánar ]Fiskiþema yngri deildar
Undir lok vorannar hafa nemendur yngri deildar verið í fiskaþema. Hver árgangur setti sér markmið og vann út frá þeim. Nemendur í 1. bekk heimsóttu t.d. Náttúrugripasafnið í Kópavogi , bjuggu til bækur um fiska og söfnuðu fróðleik í þær. 2. og 3. bekkur fræddist m.a. um helstu einkenni fiska og fisktegundir eins og urriða, þorsk og síli. Nemendur í 4. bekk lærðu um nokkrar fisktegundir og settu afraksturinn upp á vegg. ... [ nánar ]Alþjóðleg myndalistasamkeppni barna
Nemendur í 2., 4. og 6. bekk Hofsstaðaskóla taka í ár þátt í alþjóðlegri myndlistarsamkeppni á vegum Kids Parliament eða Alþingi barna. Með samkeppninni eru nemendur hvattir til listsköpunar og fumkvöðlastarfsemi. Verkefnið er eitt fjölmargra verkefna sem Alþingi barna stendur fyrir. ... [ nánar ]Palli var einn í heiminum
Hver man ekki eftir gömlu góðu sögunni um hann Palla sem var einn í heiminum? Undanfarna daga hefur 2. bekkur unnið með söguna á margvíslegan hátt. Nemendur lásu söguna í heimalestri á hverjum degi í eina viku og gerðu svo verkefni í skólanum. Þeir bjuggu meðal annars til Palla úr pappír og notuðu sem möppu fyrir öll vinnublöðin... [ nánar ]Umhverfisvika Hofsstaðaskóla
Í umhverfisviku skólans dagana 26. – 29. apríl var mikið um að vera í Hofsstaðskóla. Allir bekkir skólans tóku þátt í hreinsun á Arnarneslæknum og fengu að launum hvatningarstyrk frá bænum. Hvatningastyrkurinn var notaður til að kaupa bolta og sippubönd í alla bekki svo og nokkra húllahringi. ... [ nánar ]Verðandi skólaforeldrar í Hofsstaðaskóla
Skólaforeldrum barna sem byrja í 1. bekk í Hofsstaðaskóla í haust var boðið til fundar í skólanum þann 19. maí. Tilgangur fundarins var m.a. að upplýsa foreldra um ytri ramma skólastarfsins, kynna fyrir þeim sérfræðiþjónustuna, samskiptaleiðir heimilis og skóla og starfsemi foreldrafélagsins. ... [ nánar ]Niðurstöður úr foreldrakönnun
Í apríl var lögð könnun fyrir foreldra um námsárangur, heimanám, samskipti heimilis og skóla og upplýsingastreymi. Foreldrar voru beðnir um að svara einni könnun fyrir hvert barn sem þeir eiga í skólanum. Svörun var rúmlega 60%. Ef tölfræðilegar niðurstöður eru skoðaðar þá er útkoman góð fyrir skólann ... [ nánar ]Óskilamunir
Í vetur hefur safnast mikið af óskilamunum í skólanum. Því sem er merkt verður komið til skila til nemenda en ómerktum fatnaði hefur nú verið raðað á borð á list- og verkgreinagangi. Hjá Helgu ritara er líka talsvert magn af húslyklum, hjólalyklum, armbandsúrum og fleira smádóti t.d. frá öskudeginum. ... [ nánar ]Unicef hreyfing
Nemendur í 5. – 7. bekk í Hofsstaðaskóla tóku þátt í verkefni í samstarfi við UNICEF á Íslandi sem kallast UNICEF- hreyfing. Hreyfingin fór fram föstudaginn 13. maí milli 11:30 og 12:30 en þá fóru nemendur og kennarar eldri deildar út og hreyfðu sig saman. Með þátttöku sinni vill skólinn ná tveimur markmiðum: ... [ nánar ]Árlegt vímuvarnarhlaup
Þriðjudaginn 10. maí stóð Lionklúbburinn Eik fyrir árlegu vímuvarnarhlaupi í 5. bekkjum. Tilgangurinn með hlaupinu er að vekja börnin til umhugsunar og gera þau ábyrg og meðvituð um ábyrgð á eigin lífi og velferð. Til að undirstrika boðskapinn hafa Lionskonur tekið með sér góðar fyrirmyndir sem ávarpa krakkana á undan hlaupinu. ... [ nánar ]Íþróttir úti
Ragga Dis og Hreinn íþróttakennarar vilja minna á að frá og með mánudeginum 9. maí og fram að skólaslitum færist íþróttakennslan út. Nemendur þurfa því ekki að koma með auka íþróttaföt en þeir þurfa að koma klæddir eftir veðri. ... [ nánar ]Reiðhjólahjálmur að gjöf
Í síðustu viku komu nokkrir félagar úr Kiwanisklúbbnum Setbergi í Garðabæ í skólann og færðu öllum nemendum í 1. bekk reiðhjólahjálm að gjöf. Um er að ræða árlegt verkefni Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en verkefnið í ár hefur hlotið nafnið „Óskabörn þjóðarinnar“.... [ nánar ]Hjólum eða göngum í skólann
Nemendur Hofsstaðaskóla eru hvattir til að hjóla eða ganga í skólann 4. – 24. maí en þá fer fram hvatningarverkefni ÍSÍ „Hjólað í vinnuna“. Eins og undanfarin ár munu starfsmenn skólans taka þátt í verkefninu. Samhliða því fer fram keppni milli bekkja á yngra og eldra stigi þar sem veittar verða viðurkenningar fyrir bestan árangur. ... [ nánar ]Stærðfræðileikar á netinu
Nú hafa nokkrir kennarar skráð nemendur til þátttöku í Evrópuleikunum í stærðfræði á Mathletics vefnum http://www.mathletics.com/europeanmathschallenge/ . Þann 1. maí hófst æfingatímabil þar sem kennurum og nemendum gefst tækifæri til að kynna sér hvernig vefurinn virkar og æfa sig í stærðfræðinni. Evrópuleikarnir hefjast síðan þann 8. maí og standa til 15. maí. ... [ nánar ]Laupurinn er listasmíð
Þegar starfsfólk kom til vinnu að páskaleyfi loknu tók það eftir stóru hreiðri ofan á kastara sem vísar út á bílastæði skólans. Hreiðrið, sem oftast kallast laupur, er hin mesta listasmíð. Það er að mestu úr greinum sem hrafninn hefur safnað saman og komið svo haganlega fyrir. ... [ nánar ]Umhverfisvika
Dagur umhverfisins á Íslandi var mánudaginn 25. apríl. Af því tilefni var ákveðið að tileinka umhverfinu vikuna 26. - 29. apríl. Þessa vikuna taka allir nemendur skólans m.a. þátt í hreinsun lækjarins. Þeir skipta honum með sér og fara bekkirnir út tveir til þrír á hverjum degi og taka til hendinni. ... [ nánar ]Vinningshafi í teiknimyndasamkeppni
Á haustdögum tóku nemendur í 4. bekk, sem voru í myndmennt, þátt í teiknimyndasamkeppni í tilefni Alþjóðlega skólamjólkurdagsins undir slagorðinu „Mjólk er góð“ Til mikillar ánægju var ein af okkar myndum valin úr hópi 1300 teikninga sem bárust frá 60 skólum alls staðar að af landinu. ... [ nánar ]Glæsileg árshátíð 7. bekkja
Árshátíð 7. bekkja var fimmtudagskvölið 14. apríl með pomp og prakt. Nemendur sáu sjálfir um allan undirbúning og buðu foreldrum til glæsilegrar veislu. Þema kvöldsins var Lokaball „prom“ og mættu nemendur og foreldrar prúðbúnir og í hátíðarskapi. Kvöldið var í alla staði vel heppnað og skemmtu allir sér mjög vel. ... [ nánar ]Flottir skákmenn í Hofsstaðaskóla
Skólaskákmót Kjósarsýslu var haldið í þann 13. apríl. í Flataskóla. Á mótinu kepptu 29 börn frá Hofsstaðaskóla, Flataskóla, Barnaskóla Hjallastefnunnar og Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Keppt var í eldri og yngri flokki og tefldu 16 nemendur frá Skákklúbbi Hofsstaðaskóla í yngri flokki. ... [ nánar ]Gulur dagur í Hofsstaðaskóla
Að undanförnu hafa nemendur verið að rifja upp páskasöguna og unnið af kappi við að búa til páskaskraut. Nú er skólinn orðinn skrautlegur, þó mest beri á gula litnum. Föstudaginn 15. apríl ætlum við að bæta um betur og hafa gulan dag, nemendur eru hvattir til að mæta í einhverju gulu eða bera eitthvað gult. ... [ nánar ]Páskaungar heimsóttir í Flataskóla
Nemendur í 2. bekk fengu boð um að heimsækja Flataskóla af því jafnaldrar þeirra þar eru eru að vinna spennandi verkefni þessa dagana. Verkefnið felst í því að sjá um tíu landnámshænuunga. Ungarnir komu í skólann fyrir viku síðan og fengu ýmis nöfn s.s. Sætur, Skuggi, Kjúlli og Páski. ... [ nánar ]Skákklúbbur Hofsstaðaskóla
Íslandsmóti barnaskóla sveita (1. til 7. bekkur) fór fram í byrjun apríl og geta skáksveitir Hofsstaðaskóla vera ánægðar með árangur sinn. Samtals kepptu 41 skáksveit á mótinu. Hver sveit keppti á 4 borðum og voru 9 umferðir. Mögulegir vinningar voru því 36. Sveitir Hofsstaða skóla skipuðu sér í eftirfarandi sæti. ... [ nánar ]Íva Marín sigrar í ritgerðarsamkeppni um frið
Íva Marín í 7. Ó.P. sigraði í ritgerðarsamkeppni Lions um frið. Keppnin er alþjóðleg og er ætluð blindum og sjónskertum ungmennum á aldrinum 11-13 ára. Markmiðið með keppninni er að hvetja ungmenni til að hugsa um frið, sjá heiminn í stærra samhengi og að leggja sitt af mörkum í friðarumræðunni. Þema keppninnar er “Kraftur friðarins” ... [ nánar ]Vinnumorgun í Húsdýragarðinum
Það voru hressir krakkar úr 6. bekk sem voru mættir á bílaplan Hofsstaðaskóla í síðustu viku kl. 7:30. Ferðinni var heitið í Húsdýragarðinn en þar tóku nemendur þátt í vinnumorgni. Nemendum var skipt í hópa og sá einn hópurinn um hirðingu á nautgripum og svínum, annar hópur um hesta og kindur og þriðji hópurinn sá um hreindýr, refi og minka. ... [ nánar ]Óskum eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum,... [ nánar ]Dagur barnabókarinnar
Fimmtudaginn 31. mars kl. 9:45 var ný íslensk smásaga Hörpuslag eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur frumflutt á Rás 1. Sagan er fyrir börn á aldrinum 6 - 16 ára og var hún saman í tilefni af Degi barnabókarinnar sem er 2. apríl. Nemendur í 1. – 4. bekk Hofsstaðaskóla komu saman á sal til að hlusta á upplesturinn en nemendur í 5. – 7. bekk hlustuðu á söguna í bekkjarstofum.... [ nánar ]Starfstími tómstundaheimilis í páskafríi
Við hvetjum foreldra til að kynna sér vel meðfylgjandi upplýsinga um starfstíma tómstundaheimilisins í páskafríinu. Þeir foreldrar sem hafa hug á að nýta sér þjónustu tómstundaheimilisins dagana 18., 19. og 20. apríl eru beðnir að fylla út og senda umsókn fyrir mánudaginn 11. apríl. ... [ nánar ]4. bekkur á Árbæjarsafnið
Nemendur í 4.bekk hafa undanfarið verið að læra um landið okkar Ísland og hvernig það var hérna áður fyrr. Námsefnið sem þau styðjast við heitir Ísland áður fyrr. Hluti af verkefninu er heimsókn á Árbæjarsafnið þar sem krökkunum gefst tækifæri til að fræðast um það hvernig lífið var í gamla daga. ... [ nánar ]Stóra upplestrarkeppnin
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk 2010 -2011 fór fram við hátíðlega athöfn í Tónlistarskóla Garðabæjar fimmtudaginn 24. mars. Ellefu nemendur úr Grunnskóla Seltjarnarness og grunnskólum í Garðabæ lásu brot úr skáldsögunni Bærinn á ströndinni eftir Gunnar M. Magnúss og ljóð eftir Huldu, Unni Benediktsdóttur auk ljóða sem þátttakendur völdu sjálfir. ... [ nánar ]Góð stemmning á stofnfundi skákklúbbs
Stofnfundur Skákklúbbs Hofsstaðaskóla var haldin fimmtudaginn 5. mars. Það voru þeir feðgar Kári Georgsson og faðir hans sem áttu frumkvæðið að stofnun klúbbsins. Á stofnfundinn mættu um 27 nemendur og var stemmningin góð. ... [ nánar ]Fulltrúar nemenda í skólaráði
Miðvikudaginn 23. mars var haldinn fundur í nemendafélagi Hofsstaðaskóla þar sem tveir fulltrúar nemenda í skólaráð skólans fyrir skólaárið 2011-2012 voru kosnir og tveir til vara. Guðrún Lóa Sverrisdóttir í 6. AMH og Jón Gunnar Hannesson í 6. BV voru kosnir aðalmenn og Kristín Sif Sigsteinsdóttir og Ragnar Loki Ragnarsson í 6. AMH voru kosin varamenn. ... [ nánar ]Skákklúbbur Hofsstaðaskóla
Framtakssamir feðgar hér í skólanum eiga frumkvæði að því að stofna skákklúbb. Þetta eru Kári Georgsson í 5. H.K. og faðir hans. Þeir vilja finna skákáhugamenn í skólanum og ná þeim saman á æfingar. Fyrsta mótið sem skáksveit Hofsstaðaskóla tæki þátt í er í byrjun apríl.... [ nánar ]Heimsóknir leikskólanemenda
Krakkarnir af Hæðarbóli komu í heimsókn í Hofsstaðaskóla, borðuðu með nemendum í 1. bekk í matsal skólans og heimsóttu tómstundaheimilið Regnbogann. Heimsóknin er liður áætluninni „Brúum bilið“ sem Garðabæjar vinnur samkvæmt en tilgangurinn er að auðvelda börnum og foreldrum flutning milli leik- og grunnskóla.... [ nánar ]19. mars 2011